Unglingar á Stavangersvæðinu fóru í Kampsport

IMG_2304Það var mikið fjör hjá æskulýðshópnum í Stavanger og nágrenni þegar þau hittust í Kampsport sunnudaginn 26. febrúar.

Þar var boðið upp á ýmisskonar hópefli og óhætt að segja að allir hafi skemmt sér konunglega.

Allir unglingar á aldrinum 13-17 ára eru velkomnir í hópinn og geta fylgst með á Facebook síðu hópsins „Æskulýðsfélagið í Stavanger og nágrenni“.