Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur

Allra heilagraSjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20 Oslo laugardaginn 25.janúar kl.13-16. Skráning með því að senda póst á: starfsmadur@kirkjan.no eða prestur@kirkjan.no

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Eygló Sigmundsdóttir sálfræðingur og sr. Arna Grétarsdóttir.

Á námskeiðinu verða kennd sjálfstyrkjandi samskipti og sjálfstyrkjandi hugsun.

Farið verður í streitulosandi upplifun í  bæn, slökun og íhugun ásamt því að kenndar verða „Mindfullness“ æfingar.

Fyrirhugað er sjálfstyrkingarnámskeið fyrir karla í febrúar. Nánari upplýsingar fást hjá Valdimar fræðslufulltrúa: fraedsla@kirkjan.no