Þann 12. janúar klukkan 16:00 verður árleg hangikjötsveisla fyrir 60 ára og eldri haldin á vegum Íslenska safnaðarins í Noregi. Veislan fer fram í Skötuhúsinu á Antennaveien 40, Lambertseter Ósló.
Það má gera ráð fyrir góðri stemningu og boðið verður upp á íslenskt hangikjöt og viðeigandi meðlæti.
Allir 60 ára og eldri hjartanlega velkomnir.
