Það var hátíðleg stund þegar borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr var mættur til þess að veita viðtöku tré sem Óslóborg gefur Reykvíkingum. Þessi gjöf var nú færð í 63. skiptið og má segja að endurspegli vináttu þjóðanna. Viðstaddir voru aðilar frá borgarstjórn Óslóar, Reykjavíkur, sendiherra Íslands í Ósló, íslenski presturinn í Noregi og ýmsir fleiri. Boðið var upp á skógarkaffi og bollur að norskum sið ásamt því sem söngvararnir í hljómsveitinni 3 Raddir og Beatur tóku lagið.
