Dagana 25. til 28. október fór 30 manna hópur af unglingum víðsvegar að frá Noregi í mikla ævintýraferð á Landsmót Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar. Mótið sem hafði yfirskriftina energí og trú var haldið í Reykjanesbæ með yfir 600 þátttakendum, það stærsta hingað til. Meðal dagskrárliða voru sundlaugarpartý, fræðslustundir, búningaball og hópastarf þar sem öllum þátttakendum mótsins var boðið að taka þátt í þema við sitt hæfi. Hljómsveitin Tilviljun? fór á kostum.
Á hverju móti er staðið fyrir söfnun til þess að styrkja góð málefni og að þessu sinni var áhersla lögð á fátækt á Íslandi, fræðslu um hvernig hún birtist og söfnun til styrktar Framtíðarsjóð Hjálparstarfs kirkjunnar sem hefur það markmið að styðja ungt fólk til náms.
