Unglingastarfið í Ósló heldur áfram föstudaginn 15. nóvember klukkan 17:00
Það var góð mæting síðast og flott verkefni farið af stað sem unnið er með íslenskum unglingum vítt og breitt um Noreg. Við höldum áfram að vinna með tónlistina og á föstudaginn verðum við með fleiri hljóðfæri til þess að prófa og leika okkur með. Pizzurnar verða á sínum stað
Við mætum klukkan 17:00 í Ólafíustofu Pilastredet Park 20 þar sem Hjörleifur Valsson tónlistarsnillingur og Valdimar Svavarsson fræðslufultrúi taka á móti unglingunum.
Ertu 14-17 ára? Láttu sjá þig!
