Á síðustu árum hafa 60 ára og eldri á Ósló svæðinu komið saman í Ólafíustofu og átt þar góðar stundir. Farið er yfir það helsta í Íslenskum dagblöðum, tekið í spil, unnið að handverki, litið á íslenskt sjónvarpsefni og ýmislegt fleira.
Í vetur heldur starfið áfram og næsti fundur verður á fimmtudaginn 7. nóvember klukkan 12:00. Stundin hefst á bænastund og sameiginlegum málsverði. Að því loknu verður boðið upp á efni til föndurgerðar og markmiðið er að útbúa jólaskraut sem selt verður til styrktar Ólafíusjóði. Hægt verður að kaupa afraksturinn á aðventuhátíð safnaðarins í Nordberg kirkju þann 1. desember.
Allir 60 ára og eldri hjartanlega velkomnir. Einar T. Traustason, Osvald Kratsch og Valdimar Svavarsson fræðslufulltrúa taka vel á móti fólkinu.
