Allra heilagra messa þar sem minnst er látinna verður í Nordberg kirkju kl.14 sunnudaginnn 3. nóvember.
Skírt verður í messunni og fermingarbörn aðstoða við helgihaldið. Gengið verður til altaris.
Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu. Peggy Jenset situr við orgelið að venju.
Elín Arndís Gunnarsdóttir kennari sér um íslenskukennslu fyrir grunnskólabörn sem búa á Óslóarsvæðinu. Kennsla hefst fyrir messu.
Sunnudagaskólinn í umsjá Hrefnu og Heiðrúnar er á sínum stað á meðan á messu stendur.
Kirkjukaffi í umsjá Íslendingafélagsins í lok messu.
Verið öll hjartanlega velkomin.

