Taize messa verður haldin næstkomandi sunnudag kl. 14 í Nordberg kirkju, Kringjsårenda 1 Ósló. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir og Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir sjá um messuna. Öll fermingarbörn á svæðinu er hvött til að koma tímanlega og aðstoða við messuna.
Ískórinn syngur fyrir kirkjugesti og Hjörleifur Valsson spilar á fiðluna.
Ruth og Leópold sjá um sunnudagaskólann fyrir börnin.
Íslendingafélagið í Ósló hefur umsjón með kaffi að messu lokinni sem er í boði safnaðarins.
Verið öll hjartanlega velkomin.
