Hátíðleg stund var í Dómkirkjunni í Reykjavík sl. sunnudaginn þegar Ása Laufey Sæmundsdóttir guðfræðingur var vígð til prestsþjónustu við Íslenska söfnuðinn í Noregi. Ásamt henni var Anna Elísabet Gestsdóttir vígð til djáknaþjónustu í Útskálaprestakalli.
Vígsluvottar voru sr. Arna Grétarsdóttir, sr. Sigurður Jónsson, sr. Sveinn Valgeirsson, sr. Sigurður Grétar Sigurðsson sem lýsti vígslu ásamt djáknunum Margréti Gunnarsdóttur og Guðnýju Bjarnadóttur.Fulltrúar safnaðanna voru Kristjana Kjartansdóttir Útskálaprestakalli og Eygló Sigmundsdóttir frá íslenska söfnuðinum í Noregi. Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, vígði.
VIð vígsluathöfnina voru einnig viðstödd fyrir hönd safnaðarins í Noregi þau Lilja Björk Þorsteinsdóttir ritari sóknarnefndar, Osvald Kratch og Hanna María Helgadóttir. Sr. Ása Laufey fékk rauða stólu í vígslugjöf frá söfnuðinum sem hún var skrýdd í vígslunni og sést bera á myndinni hér til hliðar.
Óskum þeim sr. Ásu Laufeyju og Önnu Elísabetu hjartanlega til hamingju með vígsluna og Guðs blessunar í lífi og starfi.
