Skráning er hafin í fermingarfræðslu safnaðarins næsta vetur. Foreldrar þeirra barna sem vilja taka þátt í fræðslunni og fermast næsta vor eða sumar þurfa að skrá sig rafrænt hér á heimasíðunni (til hægri).
Fermingarfræðslan saman stendur af tveimur helgarnámskeiðum í samstarfi við íslensku söfnuðina í Svíþjóð og Danmörku. Námskeiðin fara fram í Aah stiftgaard í Svíðþjóð og er mestur kostnaður við námskeiðin greiddur af söfnuðinum.
Við skráningu í fræðsluna verður að taka frá dagana 27.-29.september 2013 og 9.-11. maí 2014. Aðal fræðslan fer fram á þessum helgum. Fermingarfræðslutímar verða skipulagðir eftir að skráningu er lokið og búsetudreifing er ljós. Börnin mæti svo í messur og/eða sunnudagaskóla og koma frekari tilmæli um það síðar.
Prestur safnaðarins mun ferma í Seltjarnarneskirkju 29. júní 2014. Aðrir fermingardagar verða settir upp í Ósló og úti á landsbyggðinni þegar skráningu er lokið.
