Það verður hátíðarstemning sunnudaginn 16. júní í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga þann 17. júní.
Þjóðhátíðardagur Íslendinga verður haldinn hátíðlegur á sunnudeginum 16. júní við Nordberg kirkju Kringsjågrenda 1. Dagskráin hefst kl. 14 með sérstakri helgistund í Nordbergkirkju í umsjá Sr. Örnu Grétarsdóttur og síðan heldur áfram glæsileg dagskrá Íslendingafélagsins í Ósló með ávarpi fjallkonunnar, skrúðgöngu, fjöldasöng, kaffiveitingum í boði safnaðarins og margt fleira. Það verður nóg um að vera fyrir börnin og meðal annars mun trúður mæta á svæðið og sunnudagaskólinn í Ósló býður börnum upp á að bregða sér á hestbak, hoppa og skoppa í hoppukastala og andlitsmálun.
Hægt er að skoða dagskrá hátíðarinnar betur inn á Facebook síðu Íslendingafélagsins í Ósló.
Verið öll hjartanlega velkomin!

