Verið hjartanlega velkomin.
Gönguferð næsta sunnudag kl.11.30 við Sognsvann.
Í tilefni af föstunni býður Íslenski söfnuðurinn í Noregi upp á útivist og hreyfingu undir leiðsögn Valdimars Svavarssonar þjálfara og ráðgjafa hjá Hugur og heilsa – ráðgjöf. Hópurinn hittist alla sunnudaga fram að páskum við Sognsvatn í Oslo.
Síðasta sunnudag var farið á gönguskíði og núna á sunnudaginn 17. mars verður farið í gönguferð.
Mæting kl.11.30 við söluskálann „Sognsvann kiosken“ sem stendur rétt ofan við vatnið. Allir velkomnir, bæði börn og fullorðnir.
Allar nánari upplýsingar veitir Valdimar Svavarsson í síma: 98819926.

