Messur yfir páskana í Ólafíustofu

imagesÁ Skírdag  28.mars (fimmtudagur) verður guðsþjónusta og Getsemanestund kl.17 í Ólafíustofu.  Stundin hefst á borðhaldi þar sem Jóna Magga hin velþekkta súpugerðarkona ber fram dýrindis súpu og brauð. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu. Altarisganga. Stundin markar lok námskeiðs um kristna trú og lífsýn. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Á Páskadag 31. mars verður hátíðarguðsþjónusta kl.14 í Ólafíustofu. Mikil tónlistarveisla undir stjórn Hjörleifs Valssonar fiðluleikara. Félagar úr Ískórnum leiða sálmasöng.

Börn og fullorðnir hjartanlega velkomin.

Páskaeggjaleit eftir stundina í umsjá sunnudagaskólaleiðtoganna. Kaffi og hátíðartertur í umsjá Íslendingafélagsins.

 

Verið hjartanlega velkomin hátíðarstundar á upprisuhátíð freslarans.