Hátíðarstemning 16. júní í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga þann 17. júní.

Það verður hátíðarstemning sunnudaginn 16. júní í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga þann 17. júní. Þjóðhátíðardagur Íslendinga verður haldinn hátíðlegur á sunnudeginum 16. júní við Nordberg kirkju Kringsjågrenda 1. Dagskráin hefst kl. 14 með sérstakri helgistund í Nordbergkirkju í umsjá Sr. Örnu Grétarsdóttur og síðan heldur áfram glæsileg dagskrá Íslendingafélagsins í Ósló með ávarpi fjallkonunnar, skrúðgöngu, fjöldasöng, […]

Read More »

Nýr fræðslufulltrúi ráðinn til starfa

Valdimar Þór Svavarsson hefur verið ráðinn í nýtt starf fræðslufulltrúa Íslenska safnaðarins í Noregi og hefur hann störf 1. júní n.k.  Síðustu 10 árin hefur Valdimar lagt áherslu á ráðgjöf, þjálfun og kennslu samhliða starfi á trúarlegum vettvangi. Valdimar er með liðlega 20 ára starfsreynslu á sviði rekstrar- og markaðsmála. Valdimar er með BA próf […]

Read More »

Messað í Tromsø á sjómannadaginn

Á sjómannadaginn 2. júní verður guðsþjónusta í Elverhøy kirkju í Tromsø kl.14. Kammerkór Tromsø syngur í messunni. Kaffi og spjall í kjallara kirkjunnar á eftir í umsjá Íslendingafélagsins. Allir krakkar fá sunnudagaskólann á DVD „Daginn í dag II“ að gjöf. (einn diskur á fjölskyldu). Verið hjartanlega velkomin.

Read More »

Ólafíuhátíð 8.–9. júní í Osló

  Dagskrá hátíðarinnar hefst laugardaginn 8. júní með Ólafíugöngu undir stjórn Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur, prófessors og fyrrum sendiherra Íslands í Osló. Gangan hefst kl 14.00 við styttu Wergeland á milli Stortinget og Nationaltheatret. Gengið verður um slóðir Ólafíu í Osló og fjallað um líf hennar og störf. Göngunni lýkur við Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, þar […]

Read More »

Á döfinni fram á sumar

Hvítasunnuhelgin: Haugesund: Messa 17. maí kl.14 í Skåre kirkju. Ósló: Messa annan hvítasunnudag í Nordberg kirkju kl.14. Tromsø: Messa á sjómannadaginn 2. júní í Elverhøy kirkju kl.14. Kammerkór Troms syngur og leiðir sálmasöng. Ólafíuhátíð í Óslo: Ólafíuganga þann 8. júní kl. 14 með Dr. Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur. Gengið verður um götur Óslóar og slóðir Ólafíu […]

Read More »

Messur um Hvítasunnuhelgina

Messa í Skåre kirkju í Haugesund föstudaginn 17.maí kl.14. Fermt verður í messunni. Verið hjartanlega velkomin í íslenska guðsþjónustu í Haugesund.   Messa í Nordberg kirkju í Ósló annan hvítasunnudag 20. maí kl.14. Fermt verður í messunni. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla. J Grétarssonar. Kristján Karl píanisti sest við orgelið og Hjörleifur Valsson leikur á […]

Read More »