Guðsþjónusta í Nordberg kirkju í Osló 5. febrúar kl. 14

  Næstkomandi sunnudag 5. febrúar verður guðsþjónusta í Nordberg kirkju í Osló kl.14. Sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir stundina. Ískórinn syngur í messunni undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með sögustund, söng og leikjum í umsjón Rebekku Ingibjartsdóttur. Fermingarbörnin á Oslóarsvæðinu aðstoða við helgihaldið. Kaffihlaðborð og samfélag í safnaðarheimilinu á eftir guðsþjónustunni.  Verið hjartanlega […]

Read More »

Innsetningarmessa nýs prests og fræðslufulltrúa 15. janúar kl. 14 í Nordberg kirkju Osló.

Sunnudaginn 15. janúar næstkomandi verður sr. Lilja Kristín Þorsteinssdóttir sett inn í embætti prests og fræðslufulltrúa hjá Íslensku kirkjunni í Noregi við hátíðlega athöfn í Nordberg kirkju í Osló kl. 14 og allir eru hjartanlega velkomnir til kirkju. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur í Reykjavíkurprófastdæmi vestra mun setja sr. Lilju Kristínu inní embætti. Sr. Ása Laufey […]

Read More »

Lilja Kristín Þorsteinsdóttir nýr prestur og fræðslufulltrúi íslensku kirkjunnar í Noregi

  Sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin í stöðu prests og fræðslufulltrúa hjá íslensku kirkjunni í Noregi frá og með 1. janúar s.l. Hún tekur við af sr. Ásu Laufeyju Sæmundsdóttur.  Lilja Kristín Þorsteinsdóttir er fædd árið 1969 í Reykjavík en alin upp á Húsavík Hún hefur verið búsett og starfað hjá Norsku kirkjunni […]

Read More »

Hangikjötsveisla 60 ára og eldri 12. janúar í Ólafíustofu

Fimmtudaginn 12. janúar klukkan 12:00 verður árleg hangikjötsveisla fyrir 60 ára og eldri haldin í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, á vegum Íslensku kirkjunnar í Noregi. Það má gera ráð fyrir góðri stemningu og boðið verður upp á íslenskt hangikjöt og viðeigandi meðlæti. Allir 60 ára og eldri hjartanlega velkomnir. Við hlökkum til að sjá ykkur, Osvald, Rebekka, […]

Read More »

Jólakveðja

Kæru Íslendingar í Noregi! Við biðjum ykkur blessunar á heilagri jólahátið. Megi barnið í jötunni færa frið, mildi og kærleika inn í hjörtu ykkar og jólastjarnan lýsa upp líf og veru ykkar alla. Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd  

Read More »