Guðsþjónusta í Þrándheimi

Messa verður í Bakke kirkju í Þrándheimi kl.14, sunnudaginn 19.mars.  Prestur er sr.Ragnheiður Karítas Pétursdóttir.  Kór Kjartans leiðir sálmasöng og messusvör undir stjórn Hilmars Þórðarsonar.  Sunnudagaskólinn verður á sama tíma. Kirkjukaffi á eftir í umsjá Elínar Soffíu Pilkinton safnaðarfulltrúa og Íslendingafélagsins. Kjörið tækifæri til að eiga góða samverustund i félagskap annarra íslendinga. Allir eru hjartanlega […]

Read More »

60 ára og eldri hittast í Osló

  60 ára og eldri hittast  Næstkomandi fimmtudag, 9. febrúar, hittast 60 ára eldri í Ólafíustofu Pilestredet Park 20 í Osló. Við byrjum á stuttri kyrrðarstund kl. 12:15 sem sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir áður en borðhald hefst kl. 12:30.  Á boðstólnum verður léttur hádegisverður, súpa og brauð.  Endilega kíkið við í Ólafíustofu og njótum þess að […]

Read More »

Sunnudagaskólinn

Sunnudagaskólinn verður á sínum stað, komandi sunnudag 5.mars i Nordberg kirkju kl.14. Allir eru hjartanlega velkomnir í kirkjukaffi að guðsþjónustu og sunnudagaskólanum loknum.

Read More »

Taizé messa sunnudaginn 5.mars í Oslo

Sunnudaginn 5. mars verður guðsþjónusta í Nordberg kirkju í Osló kl.14. Sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir leiðir stundina. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með sögustund, söng og leikjum í umsjón Rebekku Ingibjartsdóttur. Fermingarbörnin á Oslóarsvæðinu aðstoða. Kaffihlaðborð og samfélag í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni. Verið hjartanlega velkomin í Nordberg kirkju sunnudaginn 5. mars !

Read More »

60 ára og eldri hittast í Osló 9. febrúar í Ólafíustofu

Næstkomandi fimmtudag, 9. febrúar, hittast 60 ára eldri í Ólafíustofu Pilestredet Park 20 í Osló. Við byrjum á stuttri kyrrðarstund kl. 12:15 sem sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir áður en borðhald hefst kl. 12:30. Á boðstólnum verður léttur hádegisverður á þjóðlegu nótunum. Endilega kíkið við í Ólafíustofu og njótum þess að eiga gott samfélag saman. […]

Read More »