Aðventuhátið 3.desember
Aðventuhátíð fyrir Oslóarsvæðið verður haldin í Høvik kirkju, Sandviksveien 11, 1363 Sandvika, fyrsta sunnudag í aðventu (3.desember) . Listanefnd safnaðarins hefur sett saman metnaðarfulla dagskrá með stórsöngvurum, Ískórnum, og sönghópnum Laffa. Klassískar tónlistarperlur fylla dagskrána í flutningi einsöngvaranna Kolbeins Jóns Ketilssonar tenórs og Dóru Steinunnar Ármannsdóttur sópran, Gróa Hreinsdóttir leikur á orgelið. Kórstjóri er Gísli Jóhann Grétarsson. Konsertmeistari er Hjörleifur Valsson. Sr.Ragnheiður Karítas Pétursdóttir setur hátíðina. Varaformaður […]
Read More »



