Aðventuhátíð fyrir Oslóarsvæðið ve
rður haldin í Høvik kirkju, Sandviksveien 11, 1363 Sandvika, fyrsta sunnudag í aðventu (3.desember) .
Listanefnd safnaðarins hefur sett saman metnaðarfulla dagskrá með stórsöngvurum, Ískórnum, og sönghópnum Laffa.
Klassískar tónlistarperlur fylla dagskrána í flutningi einsöngvaranna
Kolbeins Jóns Ketilssonar tenórs og Dóru Steinunnar Ármannsdóttur sópran,
Gróa Hreinsdóttir leikur á orgelið. Kórstjóri er Gísli Jóhann Grétarsson. Konsertmeistari er Hjörleifur Valsson.
Sr.Ragnheiður Karítas Pétursdóttir setur hátíðina. Varaformaður safnaðarins Jónína Margrét Arnórsdóttir ávarpar kirkjugesti . Hátíðarræðuna flytur Stefán Snævarr.
Fermingarbörnin tendra fyrsta kertið á aðventukransinum og sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir flytur hugvekju
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað fyrir yngstu börnin.
Eftir hátíðina er gestum boðið upp að þiggja kaffi og smákökur í safnaðarheimilinu.
Verið hjartanlega velkomin.
