Á Pálmasunnudag 24. mars n.k er síðasti heilsudagur safnaðarins á föstunni. Gengið verður í kringum Sognsvatn undir leiðsögn Valdimars Svavarssonar þjálfara og ráðgjafa hjá Hugur og heilsa – ráðgjöf.
Nú er um að gera að nýta tækifærið til þess að koma í góðan félagskap og njóta náttúrunnar.
Í lok göngunnar er tekið létt spjall og tilvalið að hafa kaffi eða kakóbolla við hendina.
Mæting stundvíslega kl. 11.30 við söluskálann “ Sognsvann kiosken“ sem stendur ofan við vatnið.
Allir velkomnir, bæði börn og fullorðnir – bara mæta!
Valdimar svarar spurningum í síma 98819926.
