Barnakór

Barnakór var fromlega stofnaður eftir messu í gær, sunnudaginn 3. október. Barnakórinn mun syngja með Ískórinum og Pálma Gunnarssyni á aðventuhátíðinni 1.sunnudag í aðventu og ef vel tekst til í hátíðarguðsþjónustu annan jóladag.
Áformað er að æfa fjórum sinnum í tengslum við sunnudagaskólann og messur í Nordberg kirkju. Sunnudagaskólinn byrjar kl.14 og er í 50 mín. Barnakórsæfingarnar  hefjast strax á eftir. Barnakórinn er hugsaður fyrir börn á öllum aldri eða frá ca. 4 ára og upp úr. Æfð verða valin jólalög. Ketil Grötting kórstjóri Ískórsins mun stýra með aðstoð foreldra. Skráning fer fram hjá Ingu á skrifstofunni: starfsmadur@kirkjan.no. Einnig er velkomið að mæta á næstu æfingu og skrá börnin þar.

Sunnudagaskóli og barnakórsæfingar verða sem hér segir:

3. október kl.14            Messa/sunnudagaskóli og kóræfing; kynning og skráning
24. október kl.14          Sunnudagaskóli og kóræfing
7. nóvember kl.14        Messa/sunnudagaskóli og kóræfing
21.nóvember kl.14       Sunnudagaskóli og kóræfing
28. nóvember                Aðventuhátíð kl.14 – Mæting auglýst síðar.
19.desember kl.14      Sunnudagaskóli og kóræfing