Næstkomandi sunnudag 3. október kl.14 verður léttmessa í Nordberg kirkju í Ósló. Ískórinn mun taka létta sveiflu og börnin fá að njóta sín í söng og leik. Að venju er kirkjukaffi á eftir í umsjón Íslendingafélagsins í Ósló. Verið hjartanleg velkomin. Þetta er upphaf sunnudagaskólans og hægt verður að skrá sig í barnakór aðventuhátíðarinnar.
