Sunnudaginn 10. desember, sem er annars sunnudagur í aðventu, verður aðventumessa í Sunde kirkju (Mjughøyden 9, 4048) Hafrsfjord/Stavanger, kl. 14.
Stundina leiðir sr. Lilja Kristin Þorsteinsdóttir prestur Íslenska safnaðarins í Noregi.
Einsöngvari er Kristín Magdalena Ágústsdóttir. Organisti er Alexandra Orzechowska Nøtt.
Kveikt verður á aðventukransinum og sunnudagaskóli verður á sama tíma fyrir börnin.
Að lokinni messu verður jólatrésskemmtun í safnaðarheimilinu í umsjón Íslenska Norska félagsins í Rogalandi og Ryfylke þar sem verður gengið í kringum jólatréð.
Fólk er beðið um að koma með á kaffihlaðborðið ef það hefur tök á því.
Verið hjartanlega velkomin!
