Aðventumessa verður í Ytrebygda kirke, Skagevegen 7, 5258 Blomsterdalen. næstkomandi laugardag, 9. desember kl 13:00. Sóknarprestur íslensku kirkjunnar, sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttar þjónar fyrir altari.
Sönghópurinn í Bergen syngur undir stjórn og við undirleik Tönju . Börnin kveikja á aðventukransinum og Jólasunnudagaskólinn verður á sínum stað í umsjón Gígju Guðbrandsdóttur og Ólafar Halldóru Þórarinsdóttur..
Að messu lokinni verður kirkjukaffi og jólatréskemmtun í safnaðarheimilinu. Íslendingafélagið í Bergen sér um kaffi og saft, en gestir eru beðnir um að leggja veitingar á kaffiborðið.
Aðventuhátíð Íslendinga í Bergen og nágrenni er hátíðleg og skemmtileg stund þar sem íslensk jólastemming vaknar í hjörtum fólks. Verið hjartanlega velkomin !

