Sunnudaginn 11. desember, sem er þriðji sunnudagur í aðventu, verður aðventumessa í Sunde kirkju (Mjughøyden 9, 4048) Hafrsfjord/Stavanger, kl. 14.
Stundina leiðir sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir sóknarprestur Íslenska safnaðarins í Noregi. Einsöngvari er Katrín Ósk Óskarsdóttir. Organisti er Vidar Vikøren.
Fermingarbörnin sjá um að kveikja á aðventukransinum og aðstoða við helgihaldið.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í umsjón Þórunnar Ágústu Þórsdóttur. Þar verður sögð jólasaga, sungið og farið í leiki og föndrað jólaföndur.
Að lokinni messu verður jólatrésskemmtun í safnaðarheimilinu í umsjón Íslenska Norska félagsins í Rogalandi og Ryfylke þar sem verður gengið í kringum jólatréð.
Fólk er beðið um að koma með á kaffihlaðborðið ef það hefur tök á því.
Verið hjartanlega velkomin!
