Aðventumessa verður í Tangen kirkju Kirkebakken 1, Drammen, laugardaginn 9 desember kl.14.
Sr. Lilja Kristin Þorsteinsdóttir leiðir stundina. Ískórinn syngur og leiðir sálma- og messusöng undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Organisti og undirleikari er Gróa Hreinsdóttir.
Kveikt verður á aðventukransinum og haft ofan af fyrir börnunum á meðan á messu stendur
Jólaball í umsjón Íslendingafélagsins í Drammen verður á sínum stað eins og fyrri ár þar sem yngsta kynslóðin fær glaðning.
Jólakirkjukaffi á eftir í safnaðarheimilinu. Verið hjartanlega velkomin til kirkju.
