Sunnudaginn 13. desember, sem er þriðju sunnudagur í aðventu, verður jólamessa í Sunde kirkju (Mjughøyden 9, 4048)Hafrsfjord/Stavanger, kl. 14.
Listanefnd Íslenska safnaðarins í Noregi hefur í samstarfi við Sönghópinn í Bergen sett saman metnaðarfulla dagskrá með stórsöngvaranum Rúnari Þór Guðmundssyni. Tanja Johansen mun sjá um undirleik.
Að lokinni messu verður jólatrésskemmtun í umsjón Íslenska Norska félagsins í Rogalandi og Ryfylke. Sönghópurinn í Bergen mun syngja nokkur lög og að vanda verður gengið í kringum jólatréð.
Fólk er beðið um að koma með á kaffihlaðborðið ef það hefur tök á því.
Verið hjartanlega velkomin!
