Jólamessa og jólaball í Hellemyr kirkju í Kristiansand (Bydalsveien 19, 4628 Kristiansand S) 3.sunnudag í aðventu 13. desember kl.14.
Ómar Diðriksson hið ástasæla söngvaskáld og Hjörleifur Valsson fiðluleikari flytja fallegar perlur og leiða alla tónlist og sálmasöng í messunni. Messan verður í léttari kantinum og hún sniðin að börnum og fullorðnum.
Hallfríður Jóhannsdóttir (Hadda) sem er safnaðarfulltrúi og tengiliður safnaðarins hefur umsjón með jólaballi og kaffiveitingum.
Dansað í kring um jólatré með Ómari og Hjörleifi.
Heyrst hefur að jólasveinninn hafi íslenskt gotterí í poka handa börnunum.
Verið hjartanlega velkomin.
