Jólamessa og jólaball verður í Åssiden kirkju í Drammen (Åkerveien 2, 3024 Drammen) laugardaginn 12. desember kl.14.
Ómar Diðriksson hið ástsæla söngvaskáld og Hjörleifur Valsson fiðluleikari flytja fallegar perlur í messunni. Ískórinn syngur og leiðir sálma- og messusöng undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Organisti og undirleikari er Gróa Hreinsdóttir.
Fermingarbörn aðstoða við messuhaldið.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað að venju á meðan á messu stendur.
Jólaball og kirkjukaffi í umsjá tengiliðarins og safnaðarfulltrúans Margrétar Finnbogadóttur. Heyrst hefur að jólasveinninn hafi íslenskt gotterí í poka.
Verið hjartanlega velkomin til kirkju.
