17. júní hátíðarhöld Íslenska safnaðarins og Íslendingafélagsins í Osló verða haldin sunnudaginn 15. júní.
Hátíðarhöldin byrja
með hátíðarhelgistund í Nordberg kirkju kl.14 í umsjá Sr. Örnu Grétarsdóttur. Ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og hátíðarræðu flytur formaður Íslendingafélagsins í Osló, María Matthíasdóttir.
Að helgistund lokinni verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með hoppukastala, andlitsmálun fyrir börnin og þau sem vilja geta farið á hestbak.
Dagskrá:
Kl. 14
Hátíðarhelgistund
Kl. 14:30
Fjallkonan, Berglind Dögg Bragadóttir, flytur ættjarðarljóð.
Kl. 14:35
Ískórinn og lúðrasveit flytja ættjarðarlag.
Fjöldasöngur við undirleik lúðrasveitarinnar.
Kl. 14:45
Skrúðganga með fánabera, Fjallkonu og lúðrasveit
Kl. 15:05
ávarp Elínar Sigurðardóttur, sendiráðunautar, í tilefni 70 ára afmæli Íslenska lýðveldisins
Kl. 15:15
Bjarni töframaður skemmtir börnunum (stórum og smáum)
Kaffiveitingar í boði safnaðarins – kleinur, formkökur, flatkökur, pönnsur og möffins.
Pylsur, gos og happdrættismiðar til sölu.
Sölubásar
Boðið er upp á andlitsmálun fyrir börnin, hoppukastala og þau geta fengið að bregða sér á hestbak.
Kl. 16:00
Dregið í happdrætti Íslendingafélagsins.
Vinningarnir eru m.a. 1 gjafabréf í flug frá Icelandair og 1 gjafabréf í vikudvöl í Íslendingahúsinu í Norefjell að sumarlagi
Verið öll hjartanlega velkomin !
