Taize messa verður haldin kl. 14 í Nordberg kirkju, Kringjsårenda 1 Ósló. Þema messunar er ilmur og nærvera. Gengið verður til altaris. Öll fermingarbörn á svæðinu er hvött til að koma tímanlega og aðstoða við messuna.
Margrét Brynjarsdóttir syngur fyrir gesti og Ískórinn verður á sínum stað.
Hrefna og Heiðrún sjá um sunnudagaskólann fyrir öll börnin.
Íslendingafélagið í Ósló býður upp á kaffi þegar messu lýkur og að þessu sinni verður boðið upp á bollur að íslenskum sið í tilefni af bolludeginum þann 3. mars.
Verið öll hjartanlega velkomin.
