Taize messa 2. mars – Rjómabollur með kaffinu

MessaTaize messa verður haldin kl. 14 í Nordberg kirkju, Kringjsårenda 1 Ósló. Þema messunar er ilmur og nærvera. Gengið verður til altaris. Öll fermingarbörn á svæðinu er hvött til að koma tímanlega og aðstoða við messuna.

Margrét Brynjarsdóttir syngur fyrir gesti og Ískórinn verður á sínum stað.

Hrefna og Heiðrún sjá um sunnudagaskólann fyrir öll börnin.

Íslendingafélagið í Ósló býður upp á kaffi þegar messu lýkur og að þessu sinni verður boðið upp á bollur að íslenskum sið í tilefni af bolludeginum þann 3. mars.

Verið öll hjartanlega velkomin.