Það verður fjölskyldustemning í Nordberg kirkju, Kringsjårenda 1 Ósló, sunnudaginn 2. febrúar kl. 14:00. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og að þessu sinni kemur góður gestur í heimsókn, sjálfur Íþróttaálfurinn.
Valdimar Svavarsson fræðslufulltrúi safnaðarins mun predika og Ískórinn syngur nokkur lög. Í lok messu sameinast fullorðnir með börnunum í sunnudagaskólann og fylgjast með þegar Íþróttaálfurinn mætir á svæðið.
Íslendingafélagið sér um kaffi og kræsingar.
Líf og fjör á sunnudaginn – Verið öll hjartanlega velkomin.
