Sunnudaginn 19.febrúar kl.16 verður fjölskylduguðsþjónusta í Geilo kulturkyrke (nýju kirkjunni í Geilo). Söngur, leikur og sprell. Öllu varpað á skjá. Allar fjölskyldur fá geisladiskinn "Daginn í dag" að gjöf frá söfnuðinum. Að stundinni lokinni verður boðið upp á pizzupartý. Umsjón hafa Sakarías Ingólfsson og sr. Arna Grétarsdóttir prestur safnaðarins. Að sjálfsögðu eru allir Íslendingar og þeirra fólk velkomið til kirkju.
