Guðsþjónusta í Nordberg kirkju í Ósló á miðvikudag kl.18.

Sameiginleg guðsþjónusta nokkurra safnaða verður miðvikudaginn 8. febrúar kl.18 í Nordberg kirkju. Nordbergsöfnuður er 60 ára og bauð söfnuðunum sem halda til í kirkjunni til samstarfs um guðsþjónustu. 

Ískórinn mun syngja og leiða almennan söng undir stjórn Ketil Grötting. Sr. Arna þjónar ásamt Egil Stray Nordberg sóknarpresti kirkjunnar. Fleiri söfnuður koma að s.s  frá Kína, Tansaníu og Eþíópíu.

Verið velkomin til Alþjóðlegrar guðsþjónustu miðvikudagskvöldið kl.18.

Verið hjartanlega velkomin.