Jólamessa og tónlistarveisla í Þrándheimi

jola2Þann 15. desember kl. 12:00 verður sannkölluð tónlistarveisla í Tempe kirkju Holtermanns veg 30, 7031 Þrándheimi. Þá verður sérstök jólamessa á vegum Íslenska safnaðarins í Noregi og góðir gestir mættir til þess að spila og syngja.

Það verða bæði Íslendingakór Kjartans og Ískórinn frá Ósló sem munu syngja ásamt því að fiðluleikarinn Hjörleifur Valsson mun strjúka strengi fiðlunnar. Sr. Arna Grétarsdóttir prestur leiðir messuna og bæði fullorðnir og börn fá eitthvað við sitt hæfi.

Sunnudagaskóli verður haldinn á sama tíma fyrir þau börn sem vilja taka þátt í frábærri skemmtun og allir fá óvæntan glaðning. Verið öll hjartanlega velkomin.