Sunnudaginn 1. desember klukkan 14:00 verður haldin aðventuhátíð í Nordberg kirkju Ósló.
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran mun syngja inn í hug og hjörtu kirkjugesta.
Sérstök hátíðarræða verður flutt af Þórarni Eldjárn rithöfundi. Hjörleifur Valsson mun spila á fiðluna og Ískórinn syngur fyrir hátíðargesti.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og um að gera að koma með ungu kynslóðina. Þá verður einnig Íslenskukennsla fyrir grunnskólabörn í höndum Elínar Arndísar Gunnarsdóttur.
Í lok hátíðar verður boðið upp á kaffi og meðlæti sem Íslendingafélagið í Ósló hefur umsjón með fyrir hönd safnaðarins.
Verið öll hjartanlega velkomin.
