Sunnudag 5. mars verður guðsþjónusta í Nordberg kirkju í Osló kl.14. Sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir leiðir stundina.
Ískórinn syngur undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað með sögustund, söng og leikjum í umsjón Rebekku Ingibjartsdóttur.
Fermingarbörnin á Oslóarsvæðinu aðstoða. Kaffihlaðborð og samfélag í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni
Verið hjartanlega velkomin í Nordberg kirkju á sunnudaginn !

