Íslenskukennsla í Nordberg Kirkju

Elín Arndís Gunnarsdóttir kennari mun í vetur sjá um íslenskukennslu fyrir grunnskólabörn sem búa á Óslóarsvæðinu. Fyrsti fundur með foreldrum verður í Nordberg kirkju í tengslum við messu þann 13. október kl. 13:30. Yngstu systkini geta mætt í sunnudagaskólann á meðan þau eldri æfa færni í íslensku og foreldrar geta mætt í messu með bíóívafi. Kennslan er í boði íslenska safnaðarins og er því fjölskyldum að kostanaðarlausu. Skráðu barnið þitt með því að senda tölvupóst á: starfsmadur@kirkjan.no

Verið hjartanlega velkomin.