Guðsþjónusta verður í Nordberg kirkju þann 13. október kl.14. ískórinn syngur og fermingarbörn og ungleiðtogar aðstoða við messuhaldið. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og sr. Árni Svanur Daníelsson predika og þjóna ásamt sr. Örnu.
Sunnudagaskólinn á sínum stað og íslenskukennsla hefst.
Messukaffið í umsjá Íslendingafélagsins í Ósló.
Verið hjartanlega velkomin til kirkju.
