Sr Inga Harðardóttir var formlega sett í embætti af sr Helgu Soffíu Konráðsdóttur, prófasti, við hátíðlega messu í Bøler kirkju sunnudaginn 8. september 2019. Sr. Þorvaldur Víðisson, biskupsritari tók einnig þátt í þjónustunni, meðlimir stjórnarinnar lásu bænir, Hörður Áskelsson lék á orgel og söngflokkurinn Laffí leiddi sálmasönginn og flutti fallega tónlist. Rebekka Ingibjartsdóttir og Zsolt Anderlik héldu uppi fjörinu í sunnudagaskólanum og félagar úr 60+ hópnum reiddu fram glæsilegt hlaðborð í messukaffinu. Messan og sunnudagaskólinn voru mjög vel sótt og mikil gleði og samheldni einkenndi samfélagið í messukaffinu. Takk fyrir góðan og skemmtilegan sunnudag!
Myndirnar tók Freydís Heiðarsdóttir
- Sr Helga Soffía afhendir sr Ingu embættisbréf
- Laffí söngflokkurinn
- Allir vinir í sunnudagaskólanum
- Sr Helga Soffía þjónar í Bøler kirkju
- Björn Hallbeck, Katla Sveinbjörnsdóttir og Jónína Margrét Arnórsdóttir lásu bænir
- Sr Inga Harðardóttir, sr Helga Soffía Konráðsdóttir og sr Þorvaldur Víðisson
- Gott samfélag í messukaffinu
- Afmælisbarn dagsins fékk gjöf frá sunnudagaskólanum
- Hörður Áskelsson organisti með systrum sínum Rósu og Gunnhildi
- Þorvaldur færir Ingu gjöf frá biskupi Íslands
- Formaðurinn og presturinn
- Jónína Arnórsdóttir, formaður safnaðarins og sr. Inga Harðardóttir
- Katla Sveinbjörnsdóttir














