Fimmtudaginn 4.mai hittast 60 ára eldri í Ólafíustofu Pilestredet Park 20 í Osló.
Við mætum kl.12:00, en höldum frá Ólafíustofu kl.12:15 til Bygdøy. Þar munu sendiherrahjónin taka á móti okkur. Eigum saman góðan dag 🙂
Fimmtudaginn 11.mai verður Vorferð. Vorferðin er eins dags ferð i boði safnaðarins. Flott ef allir gætu verið mættir kl.9 ,en við leggjum af stað frá Ólafíustofu kl.9:15 .
Heimsækjum Eiðsvoll bygginguna. Þar munum við fá leiðsögn um safnið og snæða léttan málsverð. Þaðan munum við keyra upp til dómkirkjurústanna í Hamar og hafa stutta helgistund.
Að Því loknum keyrum við í ca. 50.min. út i „óvissuna“ ( leyndó) og snæðum middag áður en við höldum heim á leið til Oslo. ‘Aætlaður komutími er milli kl.19-20.
Vinsamlegast látið sr.Lilju Kristínu vita um þáttöku fyrir 4.mai. Senda tölvupóst á fraedsla@kirkjan.no eða sms 45638846.

