Á Skírdag, næstkomandi fimmtudag, 24. mars kl. 18 verður guðsþjónusta og Getsemanestund í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20. Við hefjum stundina á borðhaldi þar sem Jóna Magga ber fram dýrindis súpu og heimabakað brauð. Dóra Steinunn Ármannsdóttir syngur, Ourania Menelaou spilar á píanó og Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir predikar og þjónar fyrir altari.
Í lok stundarinnar verður altarið afskrýtt, svartur dúkur settur á það ásamt fimm rauðum rósum er tákna fimm svöðusár Jesú Krists. Gengið út í þögn um kl. 20.
Verið hjartanlega velkomin.
