Samnorræn messa verður í Margareta kirkjunni í Ósló sunnudaginn 7. febrúar kl.11. (Hammersborg Torg 8B, 0179 Oslo) Íslenski, sænski og finnski söfnuðurnir í Noregi standa saman að þessari messu sem fer fram á íslensku, sænsku, finnsku og norsku. Ískórinn mun syngja fallega íslenska sálma undir stjórn Gísla J. Grétarssonar. Prestarnir sr. Arna Grétarsdóttir, sr. Per Andres Sandgren, sr. Anssi Elenius og sr.Morthen Dafinn Sørlie munu leiða messuna. Sr. Anssi Elenius predikar á finnsku og verður predikuninni varpað á vegg í norskri þýðingu. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma og munu leiðtogar Íslenska safnaðarins hafa umsjón með honum.
Kaffi og spjall á eftir í safnaðarheimili kirkjunnar eftir messuna.
Athugið messutímann kl.11.
Verið hjartanlega velkomin!
