Jólamessa fyrir Bergensvæðið verður að þessu sinni haldin í Sælen kirkju,Vardeveien 9, 5141 Bergen, annan sunnudag í aðventu, 6. desember kl.14. Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir messar. Listanefnd Íslenska safnaðarins i Noregi í samstarfi við Sönghópinn í Bergen hefur sett saman metnaðarfulla dagskrá með stórsöngvaranum Rúnari Þór Guðmundssyni. Tanja Johansen mun sjá um undirleik.
Sunnudagaskólabörnin tendra annað kertið á aðventukransinum og sunnudagaskólinn verður á sínum stað fyrir yngstu börnin í umsjá Gígju Guðbrandsdóttur. Að venju sér Íslendingafélagið og Sönghópurinn í Bergen um kirkjukaffi á eftir í safnaðarheimilinu og gengið verður og sungið í kringum jólatréð. Félögin sjá um undirbúning, kaffi og saft, en gestir eru beðnir um að leggja til veitingar á kaffihlaðborðið. Að venju er von á íslenskum jólasveinum með eitthvað gott í poka.
Verið hjartanlega velkomin.
