Fimmtudaginn 12. febrúar hittast 60 ára og eldri kl. 12.15 á skrifstofu Íslenska safnaðarins í Noregi í Pilestredet Park 20, í Osló.
Við hefjum stundina á kyrrðar- og bænastund, síðan borðum við hádegismat saman. Að þessu sinni verður boðið upp á íslenska kjötsúpu sem síðan er fylgt eftir með kaffi og konfekti. Arnar Michelsen, formaður sóknarnefndar íslenska safnaðarins í Noregi, ætlar að spjalla við okkur um samfélagsmiðla.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Ása Laufey og Osvald.
Hér má sjá dagsetningar fram í tímann: https://www.old.kirkjan.no/kirkjustarf/eldri-hopur/
