Kaffihúsamessa verður í Nordberg kirkju Oslo, sunnudaginn 6. apríl kl.14. Kærleikur, kertaljós og rauðar rósir mynda góða stemmningu í safnaðarheimilinu þar sem messan fer fram. Notaleg stund með kaffibollan og messuskrána í hendi. ískórinn syngur undir stjórn Gísla J. Grétarssonar og Peggy spilar á píanóið. Fermingarbörn aðstoða við lestra o.fl.
Íslendingafélagið með Jónu Möggu í fararbroddi sér um kaffi og kökur að venju.
Páskaeggjaleit í sunnudagaskólanum
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og farið verður í páskaeggjaleit. Heiðrún og Hrefna taka vel á móti börnunum.
Verið hjartanlega velkomin til kirkju á sunnudaginn.
