UNGLINGASTARFIÐ Í ÓSLÓ BYRJAR 11. OKTÓBER

Feel_the_music

Í Ósló verður unglingastarfið (13 til 17 ára) byggt upp í kringum tónlistarstarf. Boðið verður upp á aðstöðu og hljóðfæri þannig að hægt verði að æfa og spila tónlist. Þetta er frábært tækifæri til þess að taka þátt í skemmtilegu starfi meðal annarra unglinga og um leið að kynnast tónlistarheiminum betur.

Við munum tengja okkur við tónlistarviðburði og leita til íslenskra tónlistarmanna til þess að gefa góð ráð. Við munum líka vinna með aðra þætti sem snúa að tónlistarstarfi svo sem myndbönd, hönnun, texta og markaðsmál svo eitthvað sé nefnt. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem þeir spila á hljóðfæri eða ekki. Hjörleifur Valsson tónlistarmaður og Valdimar Svavarsson fræðslufulltrúi stýra starfinu en það verða þátttakendurnir sjálfir sem móta starfið og ákveða stefnuna.

Við hittumst föstudaginn 11. október í Ólafíustofu Pilastredet Park 20 Kl. 17:30 – 18:30 og ræðum hugmyndina yfir pizzu og kók. Vertu með frá byrjun og taktu vinina með.

Fylgstu með og á Facebook síðunni „Unglingastarfið í Oslo og nágrenni“ eða sendu póst á fraedsla@kirkjan.no til þess að fá nánari upplýsingar.