
Hefur þú spurningar varðandi trú? Langar þig að vita meira? Má bjóða þér að vera með í góðum félagsskap?
Þér stendur til boða að taka þátt í einstöku og lífbreytandi námskeiði þar sem fjallað verður um trú á opinskáan hátt. Einnig verður lögð áhersla á hvatningu, eflingu og traust samskipti sem hver og einn getur nýtt til þess að auka lífsgæði sín og að kynnast góðum hóp af fólki. Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum og góðum tíma verður varið í umræður, spurningar og svör.
Við munum ræða spurningar eins og „Hver er tilgangurinn með þessu öllu saman? Er einhver ástæða til þess að notast við bæn eða biblíuna? Var Jesús til og hvaða máli skiptir hann? Hvernig get ég fengið meiri kraft og gleði í hversdagslegu lífi?“
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 7. febrúar og er hvern fimmtudag fram að páskum og lýkur 28. mars. Námskeiðið er haldið í vinalegu umhverfi í Ólafíustofu, Pilastredet Park 20, Oslo. Námskeiðið er á milli 16:30 til 18:30 og boðið er upp á létta máltíð í byrjun hvers fundar.
Námskeiðið er öllum opið og þér að kostnaðarlausu. Tryggðu þér pláss með því að senda póst á starfsmadur@kirkjan.no eða með því að hringja í síma 22 36 01 40.
Hlökkum til að sjá þig.

