Það verður sannarlega hátíðleg tónlistarveisla í Nordberg kirkju fyrsta sunnudaginn í aðventu 2.des kl. 14.00.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir ætlar ad syngja undurfögur jólalög ásamt Ískórnum undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar. Davíð Sigurgeirsson spilar dásamlega tóna ásamt Kristjáni Karli, Björgu Brjánsdóttur og Peggy Lous Jenset. Formaður safnaðarins Arnar Páll Michaelsen setur hátíðina og munu fermingarbörn tendra kertaljós undir sálminum Heims um ból. Kirkjukaffið er í umsjá Íslendingafélagsins í Ósló.
Verið hjartanlega velkomin á tónlistar- og hátíðarviðburð í upphafi aðventu.
